Friday, February 6, 2009

06.02.09


Mikil rólegheit í gangi hér. Ég smellti þessum myndum af útum gluggan hjá mér rétt í þessu, það er eitthvað svo mikil ró í loftinu að ég varð bara að gera það... Anyway ég er búin að vera að glugga í nýja VICE í dag, þar er viðtal við japanska mannætu og sá maður er einn sá geðveikasti sem ég hef vitað um, jesús minn hvað maðurinn er snarklikkaður OG hann er ekki í meðferð eða fangelsi, þrátt fyrir að hafa drepið eina konu og étið megnið af henni, nei hann gengur um metróin í Japan og starir á konur sem hann vill éta, já svo drekkur hann líka piss og slef, og vildi helst af öllu vera drekkt í konuslefi... Þið verðið bara að lesa þetta til að fá alla söguna. Af hverju étur hann bara ekki sjálfan sig og gerir öllum greiða?
Arna

P.s hann heitir Issei Sagawa ef þið viljið gúggla

3 comments:

Anonymous said...

já er þetta ekki gaurinn sem drap konuna í þýskalandi,sem var með honum í bekk eða ietthvap þegar hann var skiptinemi þar. hann kom einu sinni til íslands,og það er til ein mynd af honum með hávaxnari konu fyrir utan hús í þinholtunum. grein um hann i skakka turninum sko einu sinni.
laufey

Anonymous said...

haha, stelpan sem vinnur með mér sagði mér nákvæmlega sömu frétt fyndið vice er svo internasjónal
Hannsó

Harpa said...

haha.. Ég sá heimildarynd um þessa mannætu á bbc þegar ég var úti. Þar voru einmitt myndir af henni á íslandi.. Ég missti andlitið þegar ég sá hann spígspora um með eitthverri welcome to iceland pæju.. Passaðu þig .. þú ert að deita mannætu vinan..